Veiðislóð
Laxá í Laxárdal
Laxá í Laxárdal
Couldn't load pickup availability
Stílhreint prentverk af Laxá í Laxárdal þar sem farvegur árinnar er sýndur á einfaldan og listrænan hátt.
Laxá rennur um gróðursælan Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu, þar sem hraun, hólmar og fjölbreyttur gróður einkenna landslagið. Áin er þekkt fyrir stóra urriða og auðugt lífríki sem tengist Mývatni. Straumharðir strengir, lygnir hyljir og einstakt umhverfi gera Laxárdal að einum af eftirminnilegustu veiðistöðum Norðurlands.
Prentað á vandaðan 310 g/m² Museum Heritage listapappír með mattri áferð.
Hannað af Tómasi Helga Kristjánssyni.
Hægt er að óska eftir verkinu í öðrum stærðum með sérpöntun í gegnum veidislod@veidislod.is.
Verkið er unnið með kortagögn frá Náttúrufræðistofnun til hliðsjónar.

Hágæða listprent
Verkin eru prentuð á Museum Heritage pappír með mattri áferð sem dregur fram smáatriðin og gefur línunum náttúrulega dýpt.
- Þykkur og endingargóður pappír
- Mött áferð án glampa
- Dregur fram línurnar skýrt og fallega
Fagleg innrömmun
Öll verkin okkar eru innrömmuð af faglærðum innrömmurum þannig að verkið þitt njóti sín sem best.
Í boði er bæði venjulegt gler og gler með glampavörn sem dregur úr endurkasti ljóss og ver verkið gegn UV geislum.
- Rammar úr náttúrulegum við
- Snyrtilegur og nákvæmur frágangur
- Hannað til að láta verkið þitt endast
Persónuleg sérmerking
Gerðu verkið þitt enn persónulegra með sérmerkingu sem varðveitir þína veiðiminningu.
Hægt er að bæta við nafni veiðimanns, veiðistað, dagsetningu, stærð á fisk eða öðrum texta eða merkingu sem hefur sérstaka þýðingu fyrir þig.
Sérmerking kostar 2.490 kr. til viðbótar.
Hafðu samband með þína hugmynd og við útfærum hana saman.