Hver er ég?

Ég heiti Tómas Helgi og er mikill áhugamaður um veiði og íslenska náttúru. Með prentverkunum langar mig að gefa fólki tækifæri að varðveita sínar bestu veiðiminningar á einfaldan og fallegan hátt.

  • Frí heimsending yfir 25.000 kr

  • Afhending 3-5 virkir dagar

  • Prentað á Íslandi á hágæða pappír

  • Sérpantanir í boði

Algengar spurningar

Hvar sæki ég pöntunina mína?

Þú færð tölvupóst þegar pöntunin þín er tilbúin til afhendingar en Innrammarinn á Rauðarárstíg 41 sér um prentun, innrömmun og afhendingu. Einnig er hægt að fá heimsendingu eða fá verkið sent í póstbox gegn gjaldi.

Get ég skilað eða skipt?

Hægt er að hætta við pöntun fram að því að verkið fer í prentun. Þegar prentun hefst er pöntunin skuldbindandi og ekki er unnt að hætta við hana eða óska eftir endurgreiðslu.

Ef augljós galli kemur í ljós ber kaupanda að hafa tafarlaust samband við Veiðislóð. Í slíkum tilvikum er boðið annaðhvort nýtt prent eða endurgreiðsla.

Það eru liðnir meira en 5 virkir dagar síðan ég pantaði og ég hef ekki ennþá fengið afhendingarpóst. Er pöntunin mín tilbúin?

Ef ekkert hefur borist 5 virka daga eftir pöntun þá gæti verið að tilkynningin þín hafi lent í spam hólfinu eða að eitthvað hafi klikkað okkar megin. Afhendingartími eftir afsláttardaga getur þó lengst upp í 7-9 daga.

Sendu mér endilega línu á veidislod@veidislod.is ef þú ert með einhverjar frekari spurningar varðandi afhendingu.

Vantar þinn uppáhalds veiðistað eða viltu láta sérsníða verkið þitt? Láttu mig vita: