Veiðislóð
Laxá í Aðaldal
Laxá í Aðaldal
Couldn't load pickup availability
Stílhreint prentverk af Laxá í Aðaldal þar sem farvegur árinnar er sýndur á einfaldan og listrænan hátt.
Laxá í Aðaldal rennur um gróið landslag Norður-Þingeyjarsýslu áður en hún fellur til sjávar í Skjálfandaflóa. Áin er ein þekktasta laxveiðiá Íslands og hefur lengi verið eftirsótt fyrir stóran lax og fjölbreytta veiðistaði. Vatnsmikil áin, grónir bakkar og sérstakt lífríki gera Aðaldalinn að eftirminnilegum áfangastað veiðifólks.
Prentað á vandaðan 310 g/m² Museum Heritage listapappír með mattri áferð.
Hannað af Tómasi Helga Kristjánssyni.
Hægt er að óska eftir verkinu í öðrum stærðum með sérpöntun í gegnum veidislod@veidislod.is.
Verkið er unnið með kortagögn frá Náttúrufræðistofnun til hliðsjónar.

Hágæða listprent
Verkin eru prentuð á Museum Heritage pappír með mattri áferð sem dregur fram smáatriðin og gefur línunum náttúrulega dýpt.
- Þykkur og endingargóður pappír
- Mött áferð án glampa
- Dregur fram línurnar skýrt og fallega
Fagleg innrömmun
Öll verkin okkar eru innrömmuð af faglærðum innrömmurum þannig að verkið þitt njóti sín sem best.
Í boði er bæði venjulegt gler og gler með glampavörn sem dregur úr endurkasti ljóss og ver verkið gegn UV geislum.
- Rammar úr náttúrulegum við
- Snyrtilegur og nákvæmur frágangur
- Hannað til að láta verkið þitt endast
Persónuleg sérmerking
Gerðu verkið þitt enn persónulegra með sérmerkingu sem varðveitir þína veiðiminningu.
Hægt er að bæta við nafni veiðimanns, veiðistað, dagsetningu, stærð á fisk eða öðrum texta eða merkingu sem hefur sérstaka þýðingu fyrir þig.
Sérmerking kostar 2.490 kr. til viðbótar.
Hafðu samband með þína hugmynd og við útfærum hana saman.