Veiðislóð
Haukadalsá
Haukadalsá
Couldn't load pickup availability
Stílhreint prentverk af Haukadalsá þar sem farvegur árinnar er sýndur á einfaldan og listrænan hátt.
Haukadalsá rennur um gróðursælan Haukadal í Dalasýslu og tengist Haukadalsvatni á leið sinni til sjávar. Áin er þekkt fyrir laxveiði og fallega hylji sem dreifast um bugðóttan farveg hennar. Friðsælt landslagið, fjöllin umhverfis og veiðimenningin gera Haukadalsá að einstökum stað fyrir þá sem þekkja hana.
Prentað á vandaðan 310 g/m² Museum Heritage listapappír með mattri áferð.
Hannað af Tómasi Helga Kristjánssyni.
Hægt er að óska eftir verkinu í öðrum stærðum með sérpöntun í gegnum veidislod@veidislod.is.
Verkið er unnið með kortagögn frá Náttúrufræðistofnun til hliðsjónar.

Hágæða listprent
Verkin eru prentuð á Museum Heritage pappír með mattri áferð sem dregur fram smáatriðin og gefur línunum náttúrulega dýpt.
- Þykkur og endingargóður pappír
- Mött áferð án glampa
- Dregur fram línurnar skýrt og fallega
Fagleg innrömmun
Öll verkin okkar eru innrömmuð af faglærðum innrömmurum þannig að verkið þitt njóti sín sem best.
Í boði er bæði venjulegt gler og gler með glampavörn sem dregur úr endurkasti ljóss og ver verkið gegn UV geislum.
- Rammar úr náttúrulegum við
- Snyrtilegur og nákvæmur frágangur
- Hannað til að láta verkið þitt endast
Persónuleg sérmerking
Gerðu verkið þitt enn persónulegra með sérmerkingu sem varðveitir þína veiðiminningu.
Hægt er að bæta við nafni veiðimanns, veiðistað, dagsetningu, stærð á fisk eða öðrum texta eða merkingu sem hefur sérstaka þýðingu fyrir þig.
Sérmerking kostar 2.490 kr. til viðbótar.
Hafðu samband með þína hugmynd og við útfærum hana saman.